Sunday Feb 19, 2023
Jæja Ingibjörg - Hvað er planið?
Velkomin í fyrsta þátt af Ingibjörg Podcast!
Í þessum þáttum mun ég fara yfir þau skref sem ég hef tekið og er að taka í áttina að því að ná stjórn á eigin lífi.
Ofhugsa, fresta, kvíða, óttast, þóknast öðrum ... Þetta eru allt hlutir sem halda aftur að hamingju okkar. Saman skulum við komast að því hvernig við getum unnið með þessa hluti og hætt að láta þá stjórna lífi okkar.
Ég er ekki sálfræðingur eða ráðgjafi. Ég er bara manneskja sem hefur brennandi áhuga á því hvernig heilinn virkar, elska að tala og ég er orðin þreytt á því að láta ofan talda hluti stjórna mér. Ég vil þessvegna deila áhugaverðum hlutum sem ég hef komist að, virka fyrir mig og þeim sem ég er að vinna í hverju sinni - og vonandi, er það hvatning fyrir aðra að gera slíkt hið sama, læra og eða, njóta félagsskapsins sem hver þáttur hefur uppá að bjóða.
Fylgdu hlaðvarpinu á instagram: #ingakristjansd
Comments (0)
To leave or reply to comments, please download free Podbean or
No Comments
To leave or reply to comments,
please download free Podbean App.